miðvikudagur, september 16, 2009

Breytingar..

Ég finn á mér að ég fer aaaalveg að detta í blogg-gírinn aftur.. en ekki alveg strax.. ;)

þriðjudagur, ágúst 11, 2009

Sumarfrí part II

Jessss ! Elska sumarfrí.. núna er t.d. þriðjudagur og ég er ennþá á náttfötunum.. búin að dúllast í morgun..setja í þvottavél og sollis dúll og dansa eins og kreisí vóman útum alla íbúð.. love it !!

föstudagur, ágúst 07, 2009

Ég fer í fríið.. fer í fríið..

Sumarfrí part II byrjar tækinlega ekki fyrr en á mánudagsmorgun.. en byrjar samt eiginlega bara núna í dag klukkan 16:30 ;) jessss.. hlakka mikið til.. ætla auðvitað að gera allt í heiminum en enda eflaust á því að gera lítið sem ekkert :) leiðist það ekki mikið sko.. En fríið kemur til með að byrja á hand og fótsnyrtingu og mig hlakkar ekkert lítið til ! aldrei farið í handsnyrtingu áður.. og finnst æði að fá fótsnyrtingu..

Annars gengur lífið bara ágætlega.. hausinn á mér er nú samt búinn að vera á einhverju flakki.. mig langar í ró og næði í hausnum á mér.. en það kemur að því einn góðan veðurdag.. efast ekki um það.. og ég hef svo sem aldrei verið neitt rosalega klár í að höndla breytingar en gengur samt betur núna en oft áður ;)

Ení hú.. ég er komin í alltof mikinn frí fíling og er þar af leiðandi ekkert að nenna vinna.. þannig að ég sit og blogga í staðinn ;)

föstudagur, júlí 24, 2009

Mar spyr..

Ég sver að ég gæti akkúrat núna mjög auðveldlega sofnað sitjandi fyrir framan tölvuna hérna í vinnunni... Síðasta klukkutímann er búið að vera ekkert.. akkúrat ekki neitt að gera ! Ég er sem sagt að leysa af frammi í afgreiðslu þessa vikuna og líkar það bara fínt.. gaman að rifja upp "gamla" takta ;) en men ó men hvað er leiðinlegt að hafa svona akkúrat ekki neitt að gera :/ og sérstaklega þegar manni vantar alveg að dreifa huganum með vinnu !

Ég virðist vera að detta í svona sjálfsskoðunar gír aftur eftir þónokkurn tíma af því að hafa verið bara sátt við sjálfa mig.. gott eða slæmt.. jaaa.. það er ekki gott að segja.. en ég held nú samt að sjálfsskoðun sé alltaf af hinu góða.. bara spurning um hvort það er gott að vera farin aftur að upplifa það að maður er kannski ekki alveg sáttur við sjálfan sig.. það sem maður segir, gerir, hugsar og aðallega hvernig manni líður. Skrýtið líka hvernig svona pælingar koma upp aftur og aftur þó að það sé ekkert eitt sem maður geti bent á að hafi komið þessu af stað. Það er nú samt bara ágætt að pæla aðeins í sjálfum sér og hvernig maður lifir lífinu.. það að vera hamingjusamur er ekki sjálfgefið og síðast þegar ég tók svona "pakka" þá leið mér svo mikið mikið betur þó að ég hafi alveg þurft að horfast í augu við að ég væri kannski ekki fullkomin.. eiginlega bara langt því frá.. en það að þekkja sjálfan sig.. galla og kosti er held ég lykillinn að því að geta leyft sér að njóta hamingju ;) Þannig að þetta er allt í gúddí og ég verð eflaust bara betri og bættari manneskja eftir þetta allt.

miðvikudagur, júlí 22, 2009

upp og niður..

Undanfarna daga er ég búin að vera mikið upp og niður.. eða kannski réttara að tala um undanfarnar vikur.. ég vakna og mér líður ýmist vel, er ofur hamingjusöm eða alveg úber grömpí.. og svo líður á daginn og ég fer alveg á hinn endan á skalanum og aftur tilbaka og bara útum allt ! Þetta getur verið frekar þreytandi.. þegar það eina sem mig langar er að vera hamingjusöm alltaf.. ég veit samt alveg að lífið er upp og niður hjá öllum og ég hef ekkert á móti smá sveiflum en komm on.. allur skalinn og suma daga oft er kannski fullmikið af því góða.. er þaggi ?


Kannski er erfiðara en ég hélt fyrir mig að vera komin aftur í samband.. ekki það.. mér finnst ég vera mjög heppin kona að hafa fundið hann Benna og hann er alltaf rosalega góður við mig.. en það eru mikil viðbrigði að eftir helling af árum að því að hafa ekkert að hugsa um nema sjálfa mig að þurfa allt í einu að fara taka tillit til annars aðila.. en hey.. ég bara æfi mig aðeins meira og þá verður þetta allt í gúddí ;)

Svo er sumarið bara hálfnað.. áður en ég veit af verða að koma jól.. aftur.. þetta sumar er samt búið að vera frábært.. ekkert nema gott veður, knús og kossar nánast alla daga :) Núna eru rúmar 2 vikur í að ég fari aftur í fríi og þá er planið að gera meira af engu :) fer í klippingu, ætla fara og fá mér sushi með Láru og eflaust eitthvað fara á rúntinn um sveitina.. verður ofur næs :)

föstudagur, júlí 10, 2009

Rósin mín


Benni færði mér rós úr garðinum sínum :-)

þriðjudagur, júlí 07, 2009

Jess.. æm alæææf..

Jább.. ég er á lífi.. og hef það meira segja bara mjög gott :) er ekki alveg með nennu í blogg en fékk athugasemd um að það væri alveg næstum því kominn mánuður síðan síðast ! þannig að..

Ég hafði það mjög gott í fríinu mínu.. gerði ekkert ;) eða svona næstum því.. synti í sjónum, fór í bústað, fór á rúntinn um sveitina, lá í sundi og gerði ekkert þess á milli :) Davíð litli bró er orðinn giftur maður ! og ég formlega orðin mágkona :) er afar lukkuleg með það.. fór alveg að skæla í athöfninni og allt.. ný liðin helgi snérist öll um brúðkaup og brúðkaups tengda hluti.. var alveg búin á því þegar ég kom heim á sunnudaginn.. en alveg æðisleg helgi í faðmi fjölskyldunnar :)

Framundan er bara vinna og kúr með kæró ;) svo frí aftur í ágúst.. hver veit svo nema ég láti loksins verða af því að trítla upp á Esju.. það er ef einhver sem hefur farið áður vil koma memm..

fimmtudagur, júní 11, 2009

Alveg rétt bráðum..

Í næstu viku.. Sumarfrí :D hluti 1.. ég verð í fríi næstu 2 vikurnar og ætla svo sannarlega að njóta þess.. engin plön nema að trítla upp Esjuna og fara í brunch.. og jú kæró nefndi að reyna komast uppí bústað 1-2 nætur.. ég hlakka svo svakalega til að fara að frí.. mæ ó mæ.. ekki það að mér finnist vinnan mín leiðinleg.. alls ekki.. langar bara að hafa tíma til að gera ekkert ;) þvo fullt af þvotti, taka almennilega til heima hjá mér, hitta vinkonurnar, fara í sund um miðjan dag ;) og kannski fara eitthvað út að hlaupa og auðvitað synda meira í sjónum :)

Það hefur ekki mikið gerst undanfarið, er búin að fara 2svar í viðbót að synda í sjónum.. og er núna í alvörunni farin að synda smá ;) er búin að fara nokkrum sinnum út að hlaupa og í ræktina.. borðaði fullt af sushi hjá Ellen um daginn.. það var svaka gott.. fékk fullt af stelpum til mín í gleði sama kvöld og sushi átið var, fór í bíltúr um sveitina um hvítasunnuhelgina og já.. er bara búin að hafa það mjög gott :)

Svo eru bara 3 vikur í að litli bró ætlar að ganga í heilagt hjónaband :D og ég hlakka svo svakalega til.. 4.júlí verður æðislegur dagur..

þriðjudagur, maí 26, 2009

Síðan síðast..

Sæl og blessuð..

Þar sem það virðast ennþá nokkrar hræður kíkja hérna inn af og til þá hef ég ákveðið að reyna blogga aðeins oftar en 1 sinni í mánuði ;) Enda sumarið komið og kannski maður fari þá að gera eitthvað sem er vert að segja frá.

Síðan síðast hefur ekki mikið gerst.. en samt smá.. en það eru samt hlutir sem ég er meira til í að segja frá bara svona í spjalli.. en ekki alveg auglýsa á netinu :) En jú.. ég fór sem sagt í sjósund þarna um daginn og er að fara aftur seinnipartinn ;) hlakka rosalega mikið til.. ég fór líka í ræktina í gær.. sem myndi vera í fyrsta skiptið á þessu ári ! hljómar ekki vel en ég er nú búin að vera fara 2-5 sinnum í sund í viku nánast allt árið þannig að ég hef ekkert verið að sitja eins og klessa heima ;) og svo er átakið bumban burt fyrir þrítugt hafið ;) haha.. kannski fer hún ekkert.. en hún skal minnka og ég verða meira holl ! það er takmarkið.. ;) og því verður náð !

Ég er líka afar hamingjusöm í mínu nýja sambandi :) fann mér mann sem kemur vel fram við mig, knúsar mig og kyssir, fær mig til að hlæja og líkar alveg jafn vel við mig þegar ég á slæma daga :) það er líka svo gaman að vera svona mikið skotin í einhverjum.. alveg æðislegt ;) mæli með því..

Framundan er svo bara meira sjósund, meiri rækt, fleiri knús og já smá sumar frí frá og með 15.júní :D

Lífið er gott..

fimmtudagur, maí 14, 2009

Ójá.. fór..sá og stóð ;)

Jæja, ég lifið sjó"sundið" af og fannst þetta svo gaman að ég ætla aftur.. og það helst bara strax í næstu viku :)

Við mættum þarna niður eftir ( í Nauthólsvíkina ) rétt um klukkan 11 og vorum komnar í gallann ( sundbolina ) nokkrum mínútum seinna.. og skelltum okkur útí.. við tókum Baywatch á þetta og hlupum útí ískaldann sjóinn. Í fyrstu ferð fórum við uppað mitti, stoppuðum í smá stund og hlupum svo aftur uppúr.. við fórum svo strax aftur ofaní og í þetta skiptið alla leið uppað öxlum, stoppuðum ekki mjög lengi í þetta skiptið en fórum ofaní í 3ja skiptið og þá aftur uppað öxlum og vorum ofaní í smá tíma.. ætli þetta hafi ekki verið svona um 3-4 mín allt saman.. sem mér skilst að sé bara nokkuð gott svona miðað við fyrsta skipti og það í brjáluðu roki ;) Þegar þetta var búið þá náðum við okkur í smá hita í kroppinn með því að stoppa í heita pottinum á leiðinni í sturtu. Þetta var ótrúlega lítið mál.. miklu minna mál en ég hélt.. eftir því sem stóð í gestabókinni í Nauthólsvíkinni var sjórinn 8° heitur sem er ekki mjög mikið.. en eflaust er hann oft mun kaldari.

Þegar þetta var búið þá mættum við aftur ofur ferskar í vinnu.. nema það er svo skrýtið.. um eitt leytið þá leið mér eins og ég hefði að koma af ofur bootcamp æfingu.. þessi vellíðunar-þreytu-ég var svo dugleg tilfinning sem er svo góð og í gærkvöldi var ég alveg búin á því.. og var ennþá þreytt þegar ég vaknaði í morgun.

En sem sagt.. sjó"sund" sem verður kannski einhverntíman að alvöru sjósundi var æði.. við hlógum allann tímann og skemmtum okkur alveg svakalega vel og planið er að fara aftur næsta miðvikudag :)

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com Free Counters
Website Counter